Palestínski fáninn blaktir við Herðubreið

Fáni Palestínu hefur blakt við hún við félagsheimilið Herðubreið í á annan mánuð. Fjölmenn friðarstund var haldin í Seyðisfjarðarkirkju síðastliðinn sunnudag.

„Við drógum fánann að húni fljótlega eftir að átökin hófust og við sáum í hvað stefndi.

Að setja hann upp er mín leið til að sýna einhvers konar stuðning. Við erum að verða vitni að hræðilegum atburðum. Við þurfum stundum að þora en ekki þegja en manni finnst maður hálf máttlaus í þessum aðstæðum, sérstaklega þegar ríkisstjórnin talar ekki máli manns,“ segir Sesselja Hlín Jónasardóttir, staðarhaldari í Herðubreið.

Hún segist finna samhug um fánann. „Það var kona hér í bænum sem gaf okkur fánann. Við höfum annars ekki fengin nein viðbrögð. Ég held við séum öll sammála um að það sem er að gerast, að heilli þjóð sé útrýmt fyrir framan nefið á okkur, sé hræðilegt.“

Hún kom að fjölmennri friðarstund sem haldinn var við Seyðisfjarðarkirkju síðasta sunnudag. „Félagið Ísland-Palestína hafði samband því það var alþjóðlegur mannréttindadagur og mannréttindasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 75 ára í ár.

Í Reykjavík, á Ísafirði og Akureyri voru mótmæli og við vorum beðin um að vera með. Ég hafði samband við prestinn og við tókum annan pól í hæðina þar sem kveikt var á kertum og sögð falleg orð.

Það var margt um manninn því eins og ég segi þá held á við séum öll sammála, óháð allri pólitík, um að ástandið sé hræðilegt. Þegar hafa verið drepin yfir 8.000 börn og 20.000 manns og reiknað með að 1.400 börn deyi milli jóla og nýárs ef átökunum linnir ekki.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.