Samið um fjármögnun skólabyggingar

Íslandsbanki og Fljótsdalshérað hafa gert með sér samning um fjármögnun á ný- og endurbyggingu við Grunnskólann á Egilsstöðum. Verkefnið er eitt það stærsta sem sveitarfélagið hefur ráðist í en gert er ráð fyrir að nýja byggingin verði rúmir fjögur þúsund fermetrar.

slandsbanki_vefur2.jpg

 

 

Íslandsbanki og Fljótsdalshérað hafa gert með sér samning um fjármögnun á ný- og endurbyggingu við Grunnskólann á Egilsstöðum. Verkefnið er eitt það stærsta sem sveitarfélagið hefur ráðist í en gert er ráð fyrir að nýja byggingin verði rúmir fjögur þúsund fermetrar að flatarmáli. Þá mun jafnframt verða unnið að endurbótum á eldri hluta skólans samhliða nýbyggingunni. Verkið hófst vorið 2008 og áætlað er að því ljúki endanlega á árinu 2010 en þá mun skólinn hafa á að skipa glæsilegri aðstöðu með heildarrými upp á  tæplega sjö þúsund fermetra.

 

„Við erum afar ánægð með að ráðast í þennan áfanga á ný- og endurbyggingu við grunnskólann, í samstarfi við Eignarhaldsfélgið Fasteign og með fulltingi Íslandsbanka”, segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs í tilkynningu frá Íslandsbanka og sveitarfélaginu. „Það er mjög mikilvægt fyrir atvinnulífið hér að sveitafélagið standi fyrir framkvæmdum nú á samdráttartímum eins og mál standa í dag. Þetta er viðamikið verkefni og verður skólinn og öll aðstaða fyrir starfsfólk og nemendur til mikillar fyrirmyndar að verkinu loknu. Þetta er einn megin þáttur í þeirri framtíðarsýn Fljótsdalshéraðs að  skapa gott samfélag á traustum grunni.”

 

„Íslandsbanki setti á fót útibú á Fljótsdalshéraði árið 2005 og hefur tekið þátt í því blómlega starfi sem þar hefur verið byggt upp”, sagði Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. ,,Atvinnuuppbygging hefur sjaldan skipt eins miklu máli og nú og er það sérlega ánægjulegt fyrir Íslandsbanka að geta tryggt þessu verkefni farsælan framgang með fjármögnun.”

 

“Samningurinn við Fljótsdalshérað er gríðarlega mikilvægur fyrir útibú Íslandsbanka á Egilsstöðum” sagði Páll Björgvin Guðmundsson útibússtjóri Íslandsbanka. Með  þessum samningi bætist sveitafélagið í hóp í góðra viðskiptavina útibúsins.”

 

 ------

 

 

 

 

Mynd:

Frá undirritun fjármögnunarsamnings vegna byggingar Grunnskólans á Egilsstöðum.  Undirritað var í nýbyggingu skólans og viðstaddir voru eftirtaldir fulltrúar Íslandsbanka og Fljótsdalshéraðs.

 

Aftari röð frá vinstri:  Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, Helga Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi Fljótsdalshéraðs, Sigurlaug Jónasdóttir skólastjóri Grunnskólans á Egilsstöðum og Eggert Sigtryggsson fasteignafulltrúi Fljótsdalshéraðs.

 

Fremri röð frá vinstri:  Páll Björgvin Guðmundsson útibússtóri Íslandsbanka á Austurlandi, Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, Eiríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, og Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri Fljótsdalshéraðs.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.