Norðfjarðargöng: Sólarhringur í fyrstu sprenginguna
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 13. nóv 2013 16:07 • Uppfært 13. nóv 2013 21:25
Sléttur sólarhringur er nú í að Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, sprengi fyrstu formlegu sprenginguna við gerð nýrra Norðfjarðarganga.
Gestir munu safnast saman nálægt gangnamunnanum í Eskifirði klukkan 16:00 en ráðherra ræsir sprenginguna klukkan 16:15.
Verktakarnir: Metrostav AS og Suðurverk hf. bjóða síðan gestum að þiggja veitingar í tilefni dagsins kl. 16:30 í Valhöll á Eskifirði.
Á meðfylgjandi mynd má sjá undirbúning fyrir gangagröftinn, þar sem búið er að hlaða í sprengingu fyrir vegskála, þar sem hann mætir jarðgöngunum. Stafninn var síðan hulinn með gúmmímottum áður en sprengt var. Myndina tók Guðmundur Þór Björnsson/Hnit hf.