Skólahúsnæðið á Djúpavogi sprungið: Útlit fyrir 100% fjölgun nemenda á aðeins sjö árum
Endurskoða þarf húsnæðismál skólastofnana á Djúpavogi í ljósi mikillar fjölgar barna á staðnum. Útlit er fyrir að nemendafjöldi grunnskólans aukist um 30% á næstu þremur árum. Leigt var auka húsnæði undir leikskólann til að hægt væri að rúma alla nemendur þar í vetur.Nemendur í grunnskóla staðarins eru 63 í vetur en voru 40 haustið 2009. Um og yfir 10 krakkar eru í þeim árgöngum sem væntanlegir eru inn í skólann næstu þrjú ár. Þeir bekkir eru tvisvar eða þrisvar sinnum stærri en þeir árgangar sem útskrifast.
Því er útlit fyrir að haustið 2016 verði 80 nemendur í skólanum haustið 2016 sem þýðir 100% fjölgun á sjö árum.
Í bréfi sem skólastjóri Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, skólastjóri grunn-, leik- og tónskólanna á Djúpavogi sendi sveitastjórn fyrir skemmstu kemur fram að ekki hafi verið hægt að sinna lögbundinni kennslu allra kennslugreina í grunnskólanum síðustu ár vegna húsnæðisskorts.
Heimilisfræði og tónlist í leiguhúsnæði
Skólinn starfar í fjórum húsum í dag. Flestar námsgreinar eru kenndar í aðalhúsnæðinu en íþróttir í íþróttamiðstöðinni, smíði í búningsherbergjum gömlu sundlaugarinnar og heimilisfræði í leiguhúsnæði í því húsi þar sem heimavist skólans var áður.
Leigusalinn, sem starfar í ferðaþjónustu, hefur hins vegar þurft salinn um miðjan maí og því hafa nemendur misst úr 2-3 vikur í kennslunni sem reynt hefur verið að bæta upp með bóklegu námi.
Sömu sögu er að segja um tónskólann en bent er á að sífelldur frágangur og geymsla á hljóðfærum skólans fari illa með þau.
Halldóra lýsir í bréfinu þeirri skoðun sinni að best sé að byggja nýja kennsluálmu við grunnskólann þar sem kennsla í smíðum, heimilisfræði og tónlist rúmist. Að auki þurfi að huga að húsnæðismálum bókasafna staðarins.
Leigt undir leikskólann líka
Frá haustinu 2011 hefur grunnskólinn aðeins starfað í 170 daga í stað 180 eins og lög gera ráð fyrir. Kennsludagarnir hafa hins vegar verið lengdir þannig að nemendur fái lögbundinn fjölda kennslustunda.
Á leikskólanum Bjarkatúni eru í vetur 49 börn. Skólinn rúmar í mesta lagi 40 börn og því var húsnæði leigt í vetur til að rúma öll börnin. Útlit er fyrir fækkun á næstu árum en þær tölur byggjast á spám.
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps samþykkti í fundi sínum í síðustu viku að skila starfshóp sem greini stöðu og þörf Djúpavogsskóla í húsnæðismálum. Niðurstöðu og tillögum sínum á hópurinn að skila eigi síðar en í mars 2014.