Enn töluverður flúor í grasi í Reyðarfirði
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 10. des 2013 20:14 • Uppfært 10. des 2013 20:15
Flúorgildi í grasi í Reyðarfirði mælast enn töluvert há. Umhverfisstofnun greip til varúðarráðstafana í fyrra eftir skarpa hækkun flúorgildanna.
Flúorgildi, sem tekin voru úr heysýnum í sumar, voru álíka há og í fyrra. Þau eru sem sagt enn býsna há en þó innan viðmiðunarmarka fyrir grasbíta.
Nokkur munur mældist eftir því hvenær var slegið. Hæst voru gildin frá miðjum júní fram í miðjan ágúst en lægri utan þess tíma.
Rétt er að hafa að styrkur flúors í grasi getur breyst nokkuð hratt samhliða breytingum á veðurfari og magni flúors í andrúmslofti.
Meðalstyrkur flúors í grasi í Reyðarfirði var hæstur innan þynningarsvæðis álversins. Þá var hærra gildi í grasi norðan fjarðar heldur en sunnan.
Gripið var til varúðarráðstafana og gerðar athugasemdir við mengunarvarnabúnað álversins eftir hækkunina í fyrra. Áfram er fylgst náið með flúorgildum í bæði grasi, heyi og búfénaði á svæðinu. Umhverfisstofnun hefur hins vegar lokað sérstakri upplýsingasíðu sem opnuð var í fyrrahaust.