Flutningabíll út af á Fagradal
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 14. jan 2014 11:06 • Uppfært 14. jan 2014 11:12
Flutningabíll með tengivagn fór út af á veginum yfir Fagradal í Egilsstaðaskógi um klukkan hálf ellefu í morgun í mikilli hálku.
Bíllinn var komin langleiðina upp brekkuna þegar hann byrjaði að renna aftur á bak og hafnaði að lokum úti í kanti. Ekki mátti miklu muna að hann ylti.
Beðið er eftir tækjum til að ná bílnum upp en búast má við umferðartöfum á meðan því stendur þar sem loka þarf veginum.