Skip to main content

Búið að framleiða tvær milljónir tonna hjá Fjarðaáli

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 18. feb 2014 11:31Uppfært 18. feb 2014 11:33

fjardaal 2milljo tonna webÍ ársbyrjun 2014 var þeim merka áfanga náð í álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði að heildarframleiðslumagn afurða fyrirtækisins náði tveimur milljónum tonna. Nú eru liðin tæp sjö ár síðan fyrsta kerið var ræst en það var í aprílmánuði 2007.


Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri málmvinnslu hjá Fjarðaáli, segir að á hverjum degi framleiði steypuskálinn um 950 tonn af gæðaáli. Bráðnu álinu, sem sogað er upp í deiglur úr 336 kerum álversins, er ekið í deiglum eftir sérstakri akstursbraut yfir í steypuskálann. Á hverri klukkustund allan sólarhringinn er að meðaltali þremur fullum deiglum ekið inn um dyr steypuskálans, eða 84 deiglum á sólarhring.

Í steypuskálanum er fljótandi álinu hellt í ofna þar sem álinu er blandað í samræmi við óskir viðskiptavina og síðan steypt í hleifa, melmisstangir, T-barra og vírrúllur. „Á hverjum degi framleiðum við um 950 tonn af gæðavörum," segir Smári, „Hlutfall virðisaukandi vöru hefur aukist jafnt og þétt og er nú um 45% af framleiðslunni." Til virðisaukandi vöru telst framleiðsla á vírum sem notaðir eru í rafmagnsstrengi, háspennulínur og melmisblöndur sem eru að mestu notaðar í bílaiðnaðinum.

Reiknað er með því að heildarframleiðsla Alcoa Fjarðaáls verði um 350.000 tonn á árinu 2014 en samkvæmt starfsleyfi sem Umhverfisstofnun gaf út þann 8. nóvember 2010 hefur fyrirtækið heimild til þess að framleiða allt að 360.000 tonnum af áli á ári.