Gengið í hús á Austurlandi

rutubjorgun 09102013 nikkibraga 2 webBjörgunarsveitarmenn á Austurlandi hafa um helgina gengið í hús til að ná í gögn í tengslum við landsátakið „Útkall – í þágu vísinda". Yfir eitt hundrað þúsund Íslendingar hafa fengið boð um að taka þátt í samanburðarhópi fyrir rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar en átakið fer fram í samstarfi við björgunarsveitir víðsvegar um landið.

Björgunarsveitarmenn munu næstu daga banka upp á hjá þeim sem fengu send boð til að sækja gögnin en um er að ræða undirritað samþykki og munnsýni. Fyrir hvern þann sem tekur þátt styrkir Íslensk erfðagreining björgunarsveitirnar um 2.000 kr. Þeir sem ætla að taka þátt eru hvattir til þess að hafa gögnin tilbúin. Stefnt er að því að gagnasöfnunin verði kláruð í vikunni.

Með þessu átaki hyggst Íslensk erfðagreining efla rannsóknir sínar enn frekar en fyrirtækið hefur þegar fundið breytileika í erfðaefni mannsins sem tengjast áhættu á flestum gerðum algengra sjúkdóma.

Tugþúsundir Íslendinga hafa þegar svarað kallinu þegar samstarfslæknar Íslenskrar erfðagreiningar hafa boðið fólki þátttöku í rannsóknum á einstökum sjúkdómum. Alls hafa fleiri en 120.000 landsmenn þegar lagt hönd á plóginn með því að leggja til sýni og gögn til rannsóknanna. Ef vel gengur með útkallið mun ríflega meirihluti Íslendinga hafa lagt sitt af mörkum til erfðarannsókna fyrirtækisins.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.