LEX gefur út lögfræðilegan leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna

helgi johannesson lex skorinLögmannsstofan LEX hefur gefið út 70 síðna leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna um þau lögfræðilegu atriði sem þarf að huga að við stofnun og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja. Ritinu er dreift ókeypis til ferðaþjónustufyrirtækja um allt land, þar á meðal þeirra tæplega 160 fyrirtækja í greininni sem starfa á Austurlandi.

„Það hefur verið töluverður vöxtur í ferðaþjónustunni á Austurlandi," segir Helgi Jóhannesson lögmaður hjá LEX, ritstjóri leiðarvísisins. „Fyrir tíu árum voru 55 gististaðir á Austurlandi á skrá Hagstofunnar, en 2013 voru þeir orðnir 86 talsins.

Gistinóttum hafði fjölgað hlutfallslega mun meira en gististöðum, því í fyrra voru þær 407 þúsund en voru um 200 þúsund fyrir tíu árum. Ferðaþjónustufyrirtæki með leyfi frá Ferðamálastofu voru 63 á Austurlandi í fyrra og til viðbótar koma svo bílaleigur og fólksflutningafyrirtæki á svæðinu.

Þegar svo mikil gróska verður í atvinnugreininni á skömmum tíma er ekki sjálfgefið að allir hafi nægilega yfirsýn um þau fjölmörgu lagalegu álitamál sem geta komið upp við stofnun og rekstur fyrirtækjanna. Snertifletir ferðaþjónustunnar við yfirvöld, lög og reglur eru margir og ekki allir jafn augljósir. Við hjá LEX ákváðum því að leggja okkar af mörkum til að vísa veginn og gefa ferðaþjónustunni afraksturinn," segir Helgi.

Í leiðarvísinum er farið ítarlega yfir leyfisöflun, stofnun einkahlutafélaga, ábyrgð, tryggingamál, skattamál, samningagerð, samskipti við yfirvöld og fleira. Leiðarvísirinn er ekki tæmandi leiðbeiningarrit, en ætti að gefa góða yfirsýn. Eintök liggja frammi hjá sýslumönnum og dómstólum og einnig er leiðarvísirinn aðgengilegur á vefsíðu LEX svo og á vefsíðu SAF, Samtaka ferðaþjónustunnar.

„Þessi leiðarvísir okkar hjá LEX er jafnt ætlaður stjórnendum í nýjum sem rótgrónum fyrirtækjum, til að hjálpa þeim að átta sig á því hvort þeir séu með allt á hreinu í lagalegu tilliti, eða hvort þeir þurfa að bæta úr í einstaka atriðum," segir Helgi Jóhannesson.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.