Úttektir fyrir afurðamiðstöð með skógarafurðir fengu hæsta styrkinn úr Vaxtarsamningnum.
Viðarmagns- og markaðsúttekt fyrir afurðamiðstöð með skógarafurðir fékk hæsta styrkinn úr Vaxtarsamningi Austurlands í fyrri úthlutun ársins. Alls fengu ellefu verkefni styrki upp á alls 8,3 milljónir króna.Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni.
1. Meet the Locals, Hildigunnur Jörundsdóttir 1.000.000 kr.
2. Þokusetur Íslands, Ívar Ingimarsson, 500.000 kr.
3. Skógarhögg með stórvirkri vinnuvél, Kristján Már Magnússon, 500.000 kr.
4. Frumkvöðlasetur Djúpavogs, Ólafur Áki Ragnarsson, 900.000 kr.
5. Viðarmagns- og markaðsúttekt vegna afurðarmiðstöðvar fyrir skógarafurðir, Jóhann F. Þórhallsson, 1.500.000 kr.
6. Lífsstílsstuðningur fyrir þátttakendur í offitumeðferð, Hrönn Grímsdóttir, 500.000 kr.
7. Sýningin „Inside Volcanoes and the Geology of Eastern Iceland, Christa María Feucht, 300.000 kr.
8. Aukin vöruþróun og uppbygging dreifikerfis staðbundinna vara, Hákon Hildibrand, 1.000.000 kr.
9. Innleiðing Vakans, gæða- og umhverfiskerfis, Díana Mjöll Sveinsdóttir, 600.000 kr.
10. Norðurljósasetur Fáskrúðsfirði, Viðar Jónsson, 500.000 kr.
11. Gulrófusnakk, Berglind Häsler, 1.000.000 kr.
Alls bárust 22 umsóknir um tæplega 54 milljónir króna. Næst verður úthlutað í október.
Vaxtarsamningur Austurlands er samningur milli Austurbrúar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem styður við þau verkefni sem falla undir markmið hans.
Meginhugmynd í vaxtarsamningum er samstarf í svokölluðum klösum, þar sem leitast er við að efla samvinnu fyrirtækja og stofnana á ákveðnum sviðum sem á einhvern hátt geta unnið saman og nýtt styrkleika hvers annars, jafnvel þótt fyrirtækin séu að öðru leyti í samkeppni.
Samningurinn er í umsjón Austurbrúar og hefur það að meginmarkmiði að efla Austurland sem eftirsóttan valkost til búsetu. Þetta er gert með því að stuðla að atvinnuþróun með uppbyggingu svokallaðra klasa og tengslaneta en samstarf þriggja eða fleiri aðila er grundvöllur fyrir því að verkefni fái styrk úr samningnum.
Stefna vaxtarsamnings er að styðja við uppbyggingu í anda náttúru og sjálfbærni. Hrund Snorradóttir er verkefnisstjóri með Vaxtarsamningi Austurlands.