Rannsókn hafin á flugatviki við Egilsstaði
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur hafið rannsókn sína á því þegar lítil flugvél sendi út neyðarkall yfir Austfjörðum í byrjun mánaðarins.Vélin var á leið frá Færeyjum til Egilsstaða þegar hún lenti í mikilli þoku yfir Austfjörðum. Vélin var ekki búin til blindflugs og sendi flugmaðurinn því út neyðarkall þegar hann lenti í skýjunum.
Samkvæmt fréttum hvarf vélin um tíma af ratsjám en kom síðar niður úr þokunni og lenti heilu og höldnu á flugvellinum á Egilsstöðum.
Hjá Rannsóknarnefndinni fengust þær upplýsingar að rannsókn væri hafin á atvikinu og væri í ferli. Að öðru leyti voru menn ekki tilbúnir að tjá sig um framvindu hennar á þessu stigi.