Brennisteinsdíoxíð hefur sömu áhrif á dýr og menn
Matvælastofnun beinir því til dýraeigenda að verja skepnur sínar fyrir loftmengun frá eldgosinu í Holuhrauni. Mengunin hefur svipuð áhrif á dýr og menn.Í tilkynningu MAST segir meðal annars að brennisteinsdíoxíð valdi ertingu í öndunarfærum og augum. Áhrifin eru meiri því lengur sem dýrin eru útsett fyrir menguninni.
Þegar styrkur brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti er hár þarf að reyna að draga sem best verður á kosið úr álagi á öndunarfæri.
Þetta er rétt að hafa í huga við smölun þá daga sem mengunin er mikil, því meðal þess sem þarf að varast eru mikil hlaup og streita.
Engin opinber viðmiðunarmörk eru til fyrir styrk brennisteinsdíoxíðs í umhverfi dýra og rannsóknir eru takmarkaðar.
Matvælastofnun mælir með að miðað sé við sömu mörk og gilda fyrir fólk. Heilsuverndarmörk fyrir eina klukkustund eru 350µg/m3 en mörkin fyrir einn sólarhring eru 125µg/m3.
Styrkur efnisins mældist yfir mörkum á milli klukkan tvö og fjögur í gærdag á Egilsstöðum og Reyðarfirði.
Spár Veðurstofunnar gefa til kynna háan styrk mengunarinnar frá eldgosinu í Holuhrauni á svæðinu frá norðanverðum Austfjörðum norður á Langanes. Ekki er útilokað að mengunarinnar gæti á stærra svæði.