Gagnvirkt spákort um gosmengun á vef Veðurstofunnar: Reynt að auka mælingar í byggð

blaa modan 05092014 0005 webAðgengi hefur verið aukið að upplýsingum um mengun frá eldgosinu í Holuhrauni á vef Veðurstofunnar. Unnið er að ráðstöfunum til að fylgjast betur með gosmengun í byggð.

Síðustu daga hefur Veðurstofan birt textaspár um dreifingu mengunarinnar en á vef hennar er nú einnig að finna gagnvirkt kort þar sem sjá má væntanlega dreifingu mengunarinnar.

Samkvæmt spám má reikna með mengun innst á Fljótsdalshéraði og suðurfjörðum um og eftir kvöldmat á morgun. Ekki er hægt að útiloka að mengunarinnar verði vart á stærra svæði.

Þá hefur Veðurstofan opnað nýtt vefsvæði þar sem gestir geta skráð hvort þeir hafi orðið við mengun. Hægt er að nálgast svæðið af forsíðu www.vedur.is.

Í tilkynningu almannavarna frá í dag segir að verið sé að gera ráðstafanir til að auka vöktun og mælingar á brennisteinsdíoxíði í byggð.

Hjá Umhverfisstofnun fengust í dag þær upplýsingar að frekari tilkynninga væri að vænta á morgun en unnið væri við að gera upplýsingarnar sem aðgengilegastar almenningu.

Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð er að störfum og samhæfir aðgerðir og upplýsingagjöf. Í dag var meðal annars haldinn stöðufundur um áhrif loftgæða með lögregluembættunum og sveitarstjórnum á Húsavík, Seyðisfirði,Eskifirði, Hvolsvelli og Selfossi. Reglulegir fundir eru með Sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun um aðgerðir í vöktun og mælingu loftgæða á landsvísu.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.