Róleg vika hjá lögreglu
Helgin og seinni hluti síðustu viku var rólegur hjá austfirskum lögreglumönnum. Ökumenn lentu þó sums staðar í vanda í hálku í Seyðisfjarðarumdæmi.Helst var erill í kringum brottför Norrænu en tveir flutningabílar festust á Fjarðarheiði. Í kjölfarið lentu rútur sem voru þar á ferð í vandræðum en bílarnir virtust ekki nægilega vel búnir til vetraraksturs á heiðum.
Þá skautuðu ökumenn út af á fjallvegum, svo sem Möðrudalsöræfum, Fjarðarheiði og Öxi.
Rjúpnaveiði hófst á föstudag en virðist hafa farið vel af stað að öðru leyti en því að veiðin virðist hafa verið dræm.