Skip to main content

Eldur i steypuskála Fjarðaáls

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 12. nóv 2014 07:43Uppfært 12. nóv 2014 07:46

alver 14082014Engin slys urðu á fólki þegar eldur kom upp í steypuskála Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði um klukkan sjö í morgun. Slökkvistarfi er nú að ljúka og eftir að meta áhrifin.


Eldurinn kviknaði i hleifasteypuvél. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls, segir starfsfólk hafa brugðist hárrétt við og skálinn verið rýmdur í skyndi.

Slökkviliðið var kallað á svæðið og hafði það ráðið niðurlögum hans að mestu um klukkan hálf átta.

Nokkur reykur var á svæðinu og eftir er að kanna skemmdir. Eldsupptök eru ókunn.