Setja spurningarmerki við að Reykjavíkurborg ráði ferðinni í samningaviðræðum
Austfirskir tónlistarkennarar hafa þungar áhyggjur af stöðu kjaradeilu þeirra við Samband sveitarfélaga. Þeir hafa áhyggjur af áhrifum Reykjavíkurborgar innan samninganefndar sveitarfélaga.Þetta kemur fram í ályktun frá fundi tónlistarkennara á Austurlandi en verkfall þeirra hefur nú staðið í fjórar vikur.
Þeir segja líkur á að heil önn geti farið í súginn hjá nemendum og sumir hætti jafnvel alfarið í tónlistarnámi.
Um 20 kennarar skrifa undir yfirlýsinguna en þeir lýsa áhyggjum sínum af því að Reykjavíkurborg ráði ferðinni í samningaviðræðum fyrir hönd sveitarfélaga þar sem rekstrarform tónlistarskóla í borginni sé gerólíkt því sem tíðkist annars staðar.
Þar séu skólarnir sjálfseignarstofnanir og munur sé á hlutfalli grunnskólanema í tónlistarnámi þar og annars staðar.
Tónlistarkennarar hafa barist fyrir því að laun þeirra þróist á sama hátt og annarra félaga innan Kennarasambands Íslands. Þeir skora því á austfirskar sveitastjórnir að hlutast til um að viðræður verði kláraðar strax.
Í minnisblaði frá samninganefnd sveitarfélaga um stöðu viðræðnanna segir að nefndin hafi lagt áherslu á það sama og í viðræður við önnur aðildarfélög Kennarasambandsins. Þær eru meðal annars að launamyndunarþættir og vinnutímakafli sé líkari því sem gerist hjá öðrum stéttum. Slíkt geti leitt til umbóta og hagræðingar í skólastarfi.