Karen Erla tekur við af Hreini Halldórs í íþróttamiðstöðinni

baejarskrifstofur egilsstodum 3Karen Erla Erlingsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður íþróttamiðstöðvar Fljótsdalshéraðs frá næstu áramótum. Hún tekur við starfinu af Hreini Halldórssyni sem gegnt hefur því í þrjá áratugi. Fjórtán sóttu um starfið.

Karen Erla er menntaður íþróttafræðingur frá íþróttaskólanum í Köln og með framhaldsmenntun í menningar- og íþróttastjórnun frá íþróttaháskólanum í Osló.

Hún starfaði í átta ár sem kennari við Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni eftir nám. Þá var hún menningar- og íþróttafulltrúi Fljótsdalshéraðs frá árinu 2005 til 2010.

Forstöðumaður ber ábyrgð á íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum og íþróttahúsinu í Fellabæ. Í auglýsingu var óskað eftir einstaklingi sem væri fær í mannlegum samskiptum með metnað og frumkvæði auk þess sem þekking á rekstri og reynsla af stjórnun og þekking sem nýttist til viðhaldi á tækjabúnaði væri mikilvæg.

Starfið var auglýst í lok október og rann umsóknarfrestur út 10. nóvember. Alls sóttu 14 einstaklingar um starf forstöðumanns, en þrír drógu umsókn sína til baka.

Umsækjendur voru: Agnes Klara Jónsdóttir, Bjarni Þ. Bjarnason, Guðjón Hilmarsson, Guðmundur Bj. Hafþórsson, Guðrún Lilja Magnúsdóttir, Karen Erla Erlingsdóttir, Magnús Gísli Sveinsson, Ólöf Helga Adolfsdóttir, Páll G. Jónsson, Sigurður A. Þorgrímsson og Þórhallur Harðarson.

Hreinn færir sig yfir á bæjarskrifstofurnar og verður yfir mannvirkjum sveitarfélagsins.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.