Búið að sjósetja Venus NS

venus ns sjosetturNýtt uppsjávarveiðiskip HB Granda, Venus NS, var sjósett í skipasmíðastöð í Tyrklandi í gær. Stefnt er að því að skipið verði tilbúið til afhendingar í apríl.

Frá þessu er greint á vef HB Granda en fyrirtækið er með umfangsmikla starfsemi á Vopnafirði og benda einkennisstafirnir NS til að þar verði heimahöfn skipsins.

Celiktrans skipasmíðastöðin í Istanbúl vinnur nú að smíði tveggja nýrra uppsjávarveiðiskipa fyrir HB Granda og er Venus sá fyrri.

Þá hefur HB Grandi einnig samið við tyrknesku skipasmíðastöðina um smíði þriggja nýrra ísfisktogara sem afhenda á árin 2016 og 2017.

Af þeim sökum hefur fyrirtækið sent Vopnafjarðarhreppi erindi þar sem bent er á að stækka þurfi höfnina þar til að nýju skipin geti athafnað sig.

Venus NS kominn á flot. Mynd: HB Grandi/Celiktrans

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.