Skip to main content

Alla Ámunda kafteinn Pírata

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 16. mar 2013 23:15Uppfært 04. maí 2013 17:37

alla amunda piratiAðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur á Akureyri, leiðir lista Pírata í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar í vor. Tilkynnt var um nöfn fimm efstu manna í dag.

Aðalheiður er fædd árið 1976 og ólst upp á Húsavík en býr í dag á Akureyri. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri í fyrra og hefur undanfarið sinnt ýmsum störfum við lagadeild skólans, meðal annars kennslu.

Hún sat áður í háskólaráði Háskólans á Akureyri,í stjórn Þjóðareignar, samtaka um auðlindir í almannaþágu og um tíma í framkvæmdaráði Dögunar. Hún er varamaður í Landsdómi.

Í sætunum á eftir henni eru í þessari röð: Þórgnýr Thoroddsen, Helgi Laxdal, Kristín Elfa Guðnadóttir og Bjarki Sigursveinsson.

Prófkjörum Pírata lauk á miðnætti í gærkvöldi og voru nöfn fimm efstu frambjóðenda í hverju kjördæmi tilkynnt í dag. Heildarlistar verða staðfestir á næstu dögum.