Steingrímur J: Aðalvandamálið er að menn greiða annað slagið atkvæði eins og vitleysingar

steingrimur_j_sigfusson_me13.jpgHelsta vandamál Alþingismanna er hvernig þeir greiða atkvæði, ekki að þeir sitji hjá segir oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi. Búið er að koma á jafnvægi í ríkisfjármálum þannig að hægt sé að byggja upp til framtíðar. Þar eigi að setja velferðarkerfið í forgang.
 
„Þegar við tókum við var hér allt í rúst. Eitt stærsta verkefnið lenti á mínum herðum og það var að koma í veg fyrir að ríkissjóður yrði gjaldþrota.

Í dag er hann nánast rekinn án halla og við getum farið að skila því til baka sem við höfum skorið niður á næstu árum. Þá viljum við að velferðarkerfið verði sett í forgang,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon á opnum fundi í Menntaskólanum á Egilsstöðum fyrir skemmstu.

Hann sagði það forsendu velferðar og hagvaxtar að hafa náð að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi. Steingrímur sagðist hafa verið „sammála Ögmundi Jónassyni um að neita Huang Nubo um að kaupa Grímsstaði. Ég er á móti því að menn fái að kaupa upp stór landssvæði.“

Aðspurður að því hvort hann teldi að banna ætti þingmönnum að sitja hjá við atkvæðagreiðslur svaraði Steingrímur: „Aðalvandinn er að menn greiða annað slagið atkvæði eins og vitleysingar. Það þarf að laga en ekki hjásetuna!“

Þá þakkaði hann formanni Sambands ungra framsóknarmanna fyrir að hefja fyrirspurnartímann á því að spyrja flokkana út í hvað þeir ætli að gera við hugsanlegan hagnað vogunarsjóða af íslensku bönkunum.

„Ég vil þakka Framsóknarflokknum fyrir að spyrja Framsóknarflokkinn út í stefnumál hans og gefa okkur hinum tækifæri til að svara þeim!

Hægt er að hlusta á fundinn í heild sinni á vef Útvarps Seyðisfjarðar.  





Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.