Banaslys í Breiðdal
Þriggja ára stelpa lést þegar fjórhjól, sem hún var farþegi á, valt við bæinn Skjöldólfsstaði í Breiðdal rétt fyrir klukkan fjögur í gærdag. Bænastund verður klukkan átta í Heydalakirkju í kvöld.Ökumaður hjólsins slasaðist einnig og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað til aðhlynningar. Lögreglan á Eskifirði rannsakar málið.