Brothættar byggðir: Boðið til íbúaþings í Breiðdalshreppi um helgina

breiddalsvik1 ggUm næstu helgi, 2. – 3. nóvember er boðið til íbúaþings í Breiðdalshreppi. Þingið tengist verkefni Byggðastofnunar í svokölluðum „Brothættum byggðum“, þar sem áherslan er á samstarf íbúa og stofnana við að leita lausna til að efla byggð.

Þingið stendur í tvo daga. Það hefst á laugardagsmorgni kl. 11 og þá móta þátttakendur sjálfir dagskrána. Öllum er leyfilegt að stinga upp á umræðuefni en enginn er skyldaður til þess. Hægt er að ræða öll mál, t.d. atvinnumál og efnahag, umhverfismál og málefni samfélagsins. Þingað er til kl. 16 á laugardeginum og síðan frá kl. 11 – 15 á sunnudeginum.

Breiðdalshreppur er eitt af fjórum samfélögum þar sem Byggðastofnun vinnur að verkefni eins og þessu. Hin eru Bíldudalur, Skaftárhreppur og Raufarhöfn, en þar er verkefnið lengst komið.

Þetta er því fjórða íbúaþingið og er það samdóma álit þátttakenda á öllum stöðunum að það er dýrmætt fyrir samfélagið að koma saman og ræða málin með þessum hætti. Niðurstöðurnar nýtast síðan við forgangsröðun hjá þeim stofnunum sem að þinginu standa og svo eru alltaf einhver verkefni þar sem íbúar taka boltann sjálfir.

Sem dæmi má nefna að á íbúaþingi á Bíldudal voru búnir til nokkrir Facebook hópar til að fylgja málum eftir. Enda byggir verkefnið „Brothættar byggðir“ á þeirri hugsun að virkja samfélagið sjálft í eigin málum og að aðgerðir stofnana byggi á forgangsröðun íbúa á hverjum stað. Reynslan að þó margt sé líkt með stöðunni í hinum „Brothættu byggðum“ henta ekki endilega sömu lausnir allstaðar.

Þingið verður haldið í Grunnskólanum og hefst, sem fyrr sagði, kl. 11 á laugardag. Veitingar eru í boði Breiðdalshrepps og sveitarfélagið stendur einnig fyrir barnagæslu í skólanum og íþróttamiðstöðinni.

Gert verður þinghlé kl. 16 á laugardag og síðan fram haldið á sunnudag frá kl. 11 – 15. Verkefnisstjórn væntir góðrar þátttöku og eru heimamenn hvattir til að fjölmenna og láta boð út ganga, t.d. til brottfluttra Breiðdælinga. Ef marka má reynsluna frá öðrum stöðum, má búast við gagnlegu og bráðskemmtilegu íbúaþingi á Breiðdalsvík um helgina.

Samstarfsaðilar Byggðastofnunar í verkefninu eru Breiðdalshreppur, Austurbrú, Samtök sveitarfélaga á Austurlandi, Háskólinn á Akureyri og íbúar Breiðdalshrepps.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.