Þriggja stunda rafmagnsleysi á Stöðvarfirði í gær: Viðgerðarflokkar að störfum til klukkan sex í morgun

stodvarfjordur mars2013 0022 webRafmagnslaust var á Stöðvarfirði í þrjár klukkustundir í gærkvöldi. Lélegt skyggni torveldaði leit viðgerðarflokka að biluninni auk þess sem áhersla var lögð á að bjarga línum frá frekari skemmdum af völdum ísingar. Varaaflstöð sem er á staðnum var ekki gangsett.

„Við þær aðstæður sem voru í gærkvöldi tekur tíma að komast á staðinn. Síðan þurfa menn að átta sig á hvar bilunin er en jafnframt að verja línur til að ekki fari fleiri niður,“ segir Örlygur Jónasson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs RARIK.

Rafmagn fór af á Stöðvarfirði um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Þar sem bilun var á línu frá aðveitustöð var ekki hægt að slá þorpinu inn með fjarstýringum.

Því voru vinnuflokkar frá Egilsstöðum og Fáskrúðsfirði sendir af stað til að leita að biluninni. Hitinn í gærkvöldi á Austfjörðum var um frostmark og þungum, blautum snjó kyngdi niður og hlóðst á raflínur.

„Það er oft erfitt að leggja mat á hvernig hlutirnir eru. Reglan er sú að þegar um ísingu er að ræða er áherslan á að verja þær línur sem uppi eru þótt svæði séu straumlaus. Ef margar línur fara niður lengist straumleysið.“

Á Stöðvarfirði er 500 KW dísilrafstöð en hún var ekki gangsett í gærkvöldi. Örlygur segir að tíma viðgerðarmanna hafi verið betur varið í að verja línurnar sem uppi voru.

„Að sinna henni hefði kostað nokkra menn sem voru dýrmætari í öðrum verkefnum. Rafstöðin ræður heldur ekki við nema hluta þéttbýlisins þannig að það hefði stytt straumleysið hjá sumum en getað lengt það hjá öðrum ef hún hefði verið sett í gang.“

Stöðfirðingar fengu rafmagn á ný um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Bilunin var í línu inn úr þéttbýlinu í sumarhús innan við bæinn. Þau eru enn án rafmagns en viðgerðarflokkar RARIK voru að störfum á svæðinu til klukkan sex í nótt við að berja ísingu af línum.

Örlygur segir að ísing hafi hlaðist á rafmagnslínur allt frá Mjóafirði og suður á Stöðvarfjörð í gærkvöldi. Lína til Mjóafjarðar frá Seyðisfirði bilaði og því hefur varaaflstöð séð Mjófirðingum fyrir rafmagni í um sólarhring. Ekki var leitað að biluninni í gær en viðgerðarflokkur fer fljótlega af stað til að leita að biluninni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar