Skip to main content

Aðalheiður Ósk hættir hjá Vök

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 27. okt 2023 11:48Uppfært 27. okt 2023 14:25

Auglýst hefur verið eftir nýjum framkvæmdastjóra Vök Baths í Fellabæ en núverandi framkvæmdstjóri, Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, er á leið í ný ævintýri bæði suðvestanlands og jafnframt alla leið til Spánar.

Aðalheiður hefur sinnt framkvæmdastjórn þessa vinsæla baðstaðar frá byrjun árs 2021 en hún var þá valin úr stórum hópi umsækjenda um stöðuna. Gestafjöldi þennan tíma hefur aukist duglega og yfirstandi ár er metár hvað það varðar

„Við erum að fara að takast á við ný ævintýri, meðal annars á Spáni, eftir áramótin þannig að ég hætti hér hjá Vök í desembermánuði. Fram að þeim tíma vona ég að það finnist einhver flottur aðili til að taka við starfinu og það er nóg af góðu, hæfileikaríku fólki hér fyrir austan en það er gert krafa um að viðkomandi sé búsettur hér í fjórðungnum.“

Aðalheiður flutti sérstaklega austur á land þegar hún tók við starfinu á sínum tíma og því hefur fjölskyldan rekið tvö heimili síðan þá.

„Ég er að hætta því mig langar að eyða meiri tíma með fjölskyldunni sem getur verið flókið þegar haldin eru tvö heimili en jafnframt er ég með nokkur járn í eldinum sem ég ætla að takast á við á Spáni. Ég er mjög góð í sölu-, nýsköpun og markaðsþróun þó ég segi sjálf frá og langar að taka mér verkefni á því sviði þarna úti. Ekki svo að skilja að ég ætli alfarið að segja skilið við Austurlandið. Fjölmörg tækifæri hér í ferðaþjónustu og ýmsu öðru og ég vil halda að leggja mín lóð á þær vogarskálar þó ég sé flutt annað.“