Anna Margrét leiðir VG í Fjarðabyggð
Anna Margrét Árnadóttur úr Neskaupstað verður fyrsti oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Fjarðabyggð. Framboðslisti flokksins er skipaður sautján konum og einum karli.Listinn var samþykktur í hádeginu í dag á félagsfundi VG á Austurlandi á Reyðarfirði. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG og forsætisráðherra, var gestur fundarins.
„Framboð VG er mjög mikilvægt fyrir Fjarðabyggð því hér þarf að koma ákveðnum málefnum inn í umræðuna, sem hafa ekki verið áberandi hingað til. Málefni eins og umhverfisvernd, kvenfrelsi, jafnréttisbarátta hinsegin samfélagsins og fjölskyldumál,“ er haft eftir Önnu Margréti í tilkynningu.
Listinn er eftirfarandi:
1. Anna Margrét Arnarsdóttir, háskólanemi, Neskaupstað
2. Anna Berg Samúelsdóttir, náttúru- og landfræðingur, Reyðarfirði
3. Anna Sigrún Jóhönnudóttir, öryrki, Reyðarfirði
4. Helga Björt Jóhannsdóttir, framhaldsskólanemi, Neskaupstað
5. Guðrún Tinna Steinþórsdóttir, sjúkraliði, Stöðvarfirði
6. Steinunn Dagmar Björgvinsdóttir, framleiðslustarfsmaður, Reyðarfirði
7. Þórunn Björg Halldórsdóttir, verkefnastjóri, Neskaupstað
8. Helga Guðmundsdóttir Snædal, viðskiptafræðingur, Reyðarfirði
9. Marta Zielinska, leiðtogi í framleiðslu, Reyðarfirði
10. Auður Hermannsdóttir, kaffihúsaeigandi, Breiðdalsvík
11. Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupstað
12. Guðlaug Björgvinsdóttir, BA í félagsvísindum, Reyðarfirði
13. Fanney Kristjánsdóttir, leik- og grunnskólakennari, Neskaupstað
14. Styrmir Ingi Stefánsson, íþróttafræðingur, Reyðarfirði
15. Kristín Inga Stefánsdóttir, framleiðslustarfsmaður, Eskifirði/Reyðarfirði
16. Selma Kahriman Mesetovic, skrifstofustarfsmaður, Fáskrúðsfirði
17. Hrönn Hilmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðurnemi, Neskaupstað
18. Þóra Þórðardóttir, eldri borgari, Neskaupstað
Frá vinstri: Fanney Kristjánsdóttir, Helga Björt Jóhannsdóttir, Anna Margrét Arnarsdóttir, oddviti, Anna Berg Samúelsdóttir, Anna Sigrún Jóhönnudóttir, Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, Guðlaug Björgvinsdóttir, Steinunn Dagmar Björgvinsdóttir, Ingibjörg Þórðardóttir, Guðrún Tinna Steinþórsdóttir, Þórunn Björg Halldórsdóttir. Mynd: Aðsend