Austur Holding hafði betur í kjörinu um eftirmann Aðalsteins
Norski hagfræðingurinn Renate Larsen tekur sæti Aðalsteins Ingólfssonar, framkvæmdastjóra Skinneyjar Þinganess, í stjórn Kaldvíkur sem starfrækir allt laxeldi við Austfirði. Þetta var staðfest á aukaaðalfundi í gær.Aðalsteinn sagði sig úr stjórninni fyrir þremur vikum. Hann gagnrýndi fyrirhuguð kaup Kaldvíkur á umbúðaverksmiðjunni Djúpskel og vinnslu Búlandstinds á Djúpavogi, sem hann sagði keypt á verði sem hentaði aðaleigendum Kaldvíkur sem sætu báðum megin borðsins en ekki minni hluthöfum.
Hin norska Måsøval er stærst, á 70% í Austur Holding ehf. á móti Ísfélagi Vestmannaeyja. Austur Holding á aftur 55,3% í Kaldvík. Hlutur fjölskyldunnar stærri ef talin er með eigin í öðrum minni hluthöfum, svo sem Löxum eignarhaldsfélagi sem á 2,5%.
Á fundinum í gær var kjörið milli tveggja fulltrúa. Renate, sem er fyrrum framkvæmdastjóri markaðsstofu norsks sjávarútvegs en hún á áralangan feril innan norsks sjávarútvegs. Hún var kynnt sem fulltrúi Austur Holding.
Minni hluthafar sameinuðust um að bjóða fram Ingveldi Ástu Björnsdóttir, framkvæmdastjóra fasteignafélagsins Reita. Ingveldur Ásta á að baki langan feril innan íslensks sjávarútvegs sem fjármálaráðgjafi og stjórnarmaður.
Samkvæmt fundargerð, sem send var kauphöllunum á Íslandi og í Osló þar sem félagið er skráð, mættu til fundarins fulltrúar með 87,4% hlutafjár og þar með atkvæðisréttar á bakvið sig. Renate fékk um 67% atkvæða en Ingveldur Ásta 33%.
Þegar Ingveldur Ásta var boðin fram skýrði Morgunblaðið frá því að minni hluthafar ætluðu sér að óska eftir rannsókn á þeim ásökunum sem Aðalsteinn setti fram, meðal annars um vinnubrögð stjórnarformannsins Asle Rönning, yrði Ingveldur Ásta ekki kjörin. Samkvæmt fundargerðinni voru engin frekari mál, hvorki tillögur né bókanir, teknar fyrir eftir að úrslit kjörsins lágu fyrir. Asle stýrði fundinum.