Austurfrétt og Útvarp Seyðisfjörður senda út framboðsfund í ME
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 08. apr 2013 11:17 • Uppfært 08. jan 2016 19:24
Austurfrétt og Útvarp Seyðisfjörður munu í samstarfi við Menntaskólann á Egilsstöðum senda út opinn framboðsfund sem haldinn verður í skólanum á þriðjudagskvöld. Um morguninn verður fundur í Verkmenntaskóla Austurlands.
Fulltrúar þeirra tólf lista sem hyggja á framboð í kjördæminu hafa boðað komu sína á fundinn í ME. Fyrst verða framsöguræður og að þeim loknum er opnað fyrir spurningar úr sal.
Það eru nemendur í stjórnmálafræði við skólann sem standa fyrir fundinum en Helgi Seljan verður fundarstjóri. Fundurinn hefst klukkan 20:00 á hátíðarsal skólans og er öllum opin..
Austurfrétt og Útvarp Seyðisfjörður standa fyrir beinni útsendingu frá fundinum. Rétt fyrir klukkan átta á þriðjudagskvöld mun birtast hlekkur hér á netútsendingu á Austurfrétt. Seyðfirðingar geta hins vegar stillt útvarpsviðtækin á FM 101,4.
Klukkan 10:30-12:30 verður haldinn framboðsfundur í fyrirlestrarsal Verkmenntaskóla Austurlands. Þangað hafa sjö framboð staðfest komu sína en þau eru: Björt framtíð, Dögun, Framsóknarflokkurinn, Píratar, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri hreyfingin – grænt framboð.