Banaslys í Norðfjarðarsveit
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 08. okt 2023 10:47 • Uppfært 08. okt 2023 10:47
Karlmaður á sjötugsaldri fórst í slysi á sveitabæ í Norðfjarðarsveit í gær.
Tilkynning barst lögreglu um slysið laust fyrir klukkan fimm. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni og Vinnueftirlitinu. Lögreglan veitir ekki nánari upplýsingar að svo stöddu.