Skip to main content

Bjarni Gautason nýr forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Breiðdalsvík

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 31. mar 2025 10:21Uppfært 31. mar 2025 10:22

Bjarni Gautason hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Breiðdalsvík. Hann hefur um 40 ára reynslu á sviði jarðvísinda.


Bjarni lauk doktorsprófi í jarðefnafræði frá University of Alberta 2000 og nefndist doktorsritgerð hans „Geochemical apsects of crustal acretion in Iceland“. Áður hafði hann lokið meistaraprófi í jarðefnafræði frá sama háskóla árið 1992 og B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands 1985.

Bjarni hefur undanfarin 20 ár starfað hjá Íslenskum orkurannsóknum, meðal annars sem útibússtjóri og við rannsóknir og verkefnastjórn. Hann hefur reynslu af þátttöku í samstarfsverkefnum, sem og að stýra rannsóknaverkefnum. Hann hefur ritað fræðigreinar og birt í alþjóðlega ritrýndum tímaritum, auk bókarkafla, fjölda annarra greina og skýrslna og kynninga á ráðstefnum.

Bjarni starfaði um árabil sem stundakennari við Háskólann á Akureyri og hefur einnig reynslu af leiðbeiningu grunn- og framhaldsnema, störfum prófdómara og setu í doktorsnefnd. Hann var varafulltrúi í vísindanefnd Háskólans á Akureyri frá 2012 til 2021.

Við setrið starfa alla jafna tveir starfsmenn, annars vegar verkefnastjóri, hins vegar forstöðumaður. Forstöðumannsstaðan hefur verið laus í um þrjú ár og tilraunir til að auglýsa eftir nýjum ekki borið árangur fyrr en nú.

Samkvæmt frétt frá Háskóla Íslands sóttu þrír einstaklingar um stöðuna í síðustu atrennu. Gerð var krafa um doktorspróf á sviði jarðvísinda eða skyldra greina og reynslu af rannsóknum á sviðum sem hafa skírskotum til jarðfræði Íslands.

Setrið er byggt á grunni starfsemi Breiðdalsseturs ses. og er einkum ætlað að sinna rannsóknum á sviði jarðfræði og málvísinda. Háskóli Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands hafa gert samstarfssamning um að efla rannsóknir í jarðfræði á Austurlandi og fjármagna starf verkefnisstjóra við rannsóknasetrið sem meðal annast umsjón með borkjarnasafni Náttúrufræðistofnunar á Breiðdalsvík. HÍ rekur tvö rannsóknarsetur á Austurlandi, en hitt er á Egilsstöðum.

Mynd: Háskóli Íslands