Börkur sló loðnumet Beitis
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 31. jan 2022 07:24 • Uppfært 31. jan 2022 07:29
Börkur NK sló loðnumet Beitis NK þegar skipið landaði rúmum 3.400 tonnum af loðnu á Seyðisfirði fyrir helgina. Um er að ræða stærsta loðnufarm sögunnar en fyrra met setti Beitir um miðjan mánuðinn með 3.200 tonna löndun í Noregi.
„Þessi afli fékkst í átta holum á fjórum dögum. Það er ekki hægt að kvarta yfir slíkum aflabrögðum,“ segir Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki í samtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Hjörvar var eðlilega ánægður með túrinn.
„Það eru einungis þrjú skip í íslenska flotanum sem geta komið með álíka afla að landi. Börkur, systurskipið Vilhelm Þorsteinsson EA og Beitir NK, en lestarrými Beitis er þó heldur minna en hinna tveggja. Mér vitanlega er einungis eitt skip sem getur slegið þetta met og er það hin danska Ruth. Ruth er spánný og smíðuð í Karstensens skipasmíðastöðinni eins og Börkur og Vilhelm og er með örlítið meiri burðargetu,“ segir Hjörvar.
Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóri á Seyðisfirði, segir að hráefnið úr þessum mettúr sé afar gott. „Þetta er gæðahráefni og vinnslan hjá okkur gengur afar vel. Nú er líka góð veiði og nóg hráefni og við erum að undirbúa löndun úr Barða NK,“ segir Eggert í samtali á vefsíðunni.
Mynd; Börkur NK kemur með metfarminn til Seyðisfjarðar í gær. Ljósm. Ómar Bogason/svn.is