Borgarafundur á Egilsstöðum í næstu viku
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 01. okt 2010 10:12 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Stjórnlaganefnd og Samband sveitarfélaga á Austurlandi halda borgarafund um endurskoðun stjórnarskrárinnar á Hótel Héraði þriðjudaginn 5. október frá klukkan 20:00-22.00. Fundurinn er kynningafundur um stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er eftir sjónarmiðum íbúa.
Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi í sumar til þess að undirbúa endurskoðun stjórnarskrárinnar. Nefndinni er ætlað að finna og leggja fram gögn fyrir stjórnlagaþing, standa fyrir Þjóðfundi um endurskoðun á stjórnarskrá, vinna úr upplýsingum frá fundinum og afhenda stjórnlagaþingi og loks að leggja fram hugmyndir að breytingum á stjórnarskránni.
„Við viljum kynna Austfirðingum þau áform sem eru uppi um endurskoðun á stjórnarskrá lýðveldisins,“ segir Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar. „Við sem stöndum að undirbúningum óskum einnig eftir því að fá að heyra sjónarmið fólks um hvernig samfélag það vill byggja. Við hvetjum Austfirðinga til að koma á fundinn og láta rödd sína heyrast.“