Skip to main content

Borghildur Fjóla starfandi formaður Landsbjargar

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 13. nóv 2023 17:19Uppfært 13. nóv 2023 17:21

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, félagi í björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupstað, hefur tekið við tímabundið sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.


Otti Rafn Sigmarsson var kjörinn formaður Landsbjargar á þingi sambandsins haustið 2021. Hann er búsettur í Grindavík og tilkynnti í morgun að hann viki sæti sem formaður næstu tvo mánuði til að sinna fjölskyldu sinni. Sem kunnugt er var Grindavík rýmd á föstudagskvöld vegna hættu á eldgosum.

Borghildur Fjóla hefur verið í stjórn Landsbjargar frá árinu 2019 og varaformaður síðastliðin þrjú ár. Hún hefur starfað sem rekstrarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands frá 2021. Hún er einnig skráð í björgunarsveitina Ársæl í Reykjavík.

„Í ljósi aðstæðna síðustu daga er sú ákvörðun Otta Rafns Sigmarssonar að stíga tímabundið til hliðar sem formaður, virðingaverð og skiljanleg enda þarf hann rými til að sinna sinni fjölskyldu og nærumhverfi og óska ég honum alls hins besta í þeim krefjandi verkefnum sem framundan eru.

Mér er ljúft og skylt að taka við þessum bolta, enda margir þræðir hjá félaginu og mikilvægt að halda fókus. Stjórn félagsins er öflug og munum við vinna að þessu verkefni, sem og öðrum, saman sem ein heild líkt og endranær, ásamt einvala liði björgunarsveitarfólks og starfsfólks.

Okkur Íslendingum er ljóst er að framundan eru ærin verkefni í Grindavík, hvað sem framtíðin ber í skauti sér þar og eru félagar okkar tilbúin, nú eins og endranær, að bregðast við ef á þarf að halda. Stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar sendir Grindvíkingum okkar bestu kveðjur og hlýhug,“ er haft eftir henni í tilkynningu.

Mynd: Landsbjörg