Skip to main content

Botnvörpuveiðar bannaðar í Skápnum til framtíðar

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 03. mar 2022 09:40Uppfært 03. mar 2022 14:28

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem bannar veiðar með fiskibotnvörpu á svæði innan 12 sjómílna í svokölluðum „Skáp“ út af Glettningsnesi.


Lokunin gildir frá júlí og fram í desember ár hvertog tekur til þess að veiðar með fiskibotnvörpu verði bannaðar á umræddu svæði milli 6 og 12 mílna út af Glettingsnesi, syðsta hluta Skápsins.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að það hafi aflað gagna frá Fiskistofu vegna ákvörðunarinnar. Þau sýna að með lokuninni megi búast við að afli línu og handfærabáta aukist umtalsvert en hún hafi lítil sem engin neikvæð áhrif á aflabrögð þeirra togbáta sem stunda veiðar á svæðinu.

Þá hafði ráðuneytið fengið erindi frá heimastjórn Borgarfjarðar eystra þar sem þess var farið á leit að mörkuð yrði stefna um lokun á veiðum með fiskibotnvörpu á svæðinu. Borgfirðingar hafa um nokkurt skeið barist ákaft fyrir lokuninni, sem þeir segja að auki veiðar og þar með afkomu smábáta.

Reglugerðin verður formlega birt innan skamms.

Mynd: Landvernd