Einkaþota kyrrsett á Egilsstaðaflugvelli

Samgöngustofa kyrrsetti í vikunni erlenda einkaþotu á Egilsstaðaflugvelli þar sem vélin er ekki talin lofthæf. Til stóð að fljúga vélinni úr landi.

Vélin kom til Hornafjarðar frá Evrópu í lok ágúst í fyrra og stóð þar þar til á miðvikudag. Í svari Samgöngustofu við fyrirspurn Austurfréttar óskaði flugstjóri vélarinnar eftir að fá að fljúga henni til Bretlands beint þaðan. Lokaáfangastaðurinn mun hafa verið Spánn með eldsneytisstoppum á leiðinni.

Undanþáguna þarf því Hornafjarðarflugvöllur er ekki gildur millilandaflugvöllur. Beiðninni var hafnað þar sem rökstuðningur þótti ekki nægjanlegur. Flugstjórinn kaus þá að fljúga vélinni til Egilsstaða. Samgöngustofa hafði ekki veitt leyfi fyrir því.

Við lendingu þar sprakk vinstra aðalhjól vélarinnar. Hún var stopp á flugbrautinni í um tvo tíma meðan henni var komið út af og brautin þar með lokuð. Það hafði þó ekki áhrif á áætlunarflug. Atvikið var tilkynnt til Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Þar fengust þær upplýsingar að þar sem afleiðingarnar hefðu ekki verið alvarlegri teldist um flugatvik sem væri skráð en ekki rannsóknarefni að ræða.

Eftir að vélin fór frá Hornafirði fékk Samgöngustofa ábendingu um að ástand flugvélarinnar væri ekki ásættanlegt. Eftirlitsmenn voru sendir austur. Þeir fundu meira athugavert við vélina heldur en sprungna dekkið, meðal annars að hún hafði ekki lofthæfi. Ástand hennar var metið óásættanelgt og hún því kyrrsett.

Vélin ber einkennisstafina CS-DOQ og hefur verið skráð í Portúgal. Hún er af gerðinni Cessna 551 Citation II/SP og er smíðuð árið 1979. Hún tekur átta farþega.

Samgöngustofa vinnur með flugmálayfirvöldum í Portúgal að úrlausn málsins. Stofnunin hóf á miðvikudag svokallaða hlaðskoðun á vélinni, sem er umfangsmikil öryggisúttekt gerð eftir samevrópskum reglum og skráð í miðlægan gagnagrunn. Lögreglunni á Austurlandi hefur verið tilkynnt um málið.

Samkvæmt flugsíðum er vélin skráð í einkaeigu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.