Ekkert millilandaflug um Egilsstaðaflugvöll í dag
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 25. apr 2010 16:49 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Ekkert flug millilandaflugvéla hefur verið um Egilstaðaflugvöll eftir hádegi í dag. Innanlandsflugið liggur einnig niðri. Það eru öskuskotin ský í 20 þúsund feta hæð sem valda þessari lokun flugvallarinns.
Þota Flugleiða sem kom til Egilsstaða í gær og var geymd á Egilsstaðaflugvelli síðustu nótt, fór til Akureyrar klukkan 11:00 í morgun. Þaðan átti síðan að fljúga henni til annara landa með farþega.
Innanlandsflugið hefur einnig legið niðri vegna lokunar Reykjavíkurflugvallar í dag.
Það sem veldur lokun Egilsstaðaflugvallar frá hádegi í dag eru öskuskotin ský í 20 þúsund feta hæð, sem valda því að ekki fæst blindflugsheimild á Egilsstaðaflugvöll.
Þó er hægt að fljúga sjónflug á völlinn og eru einkaflugvélar þær einu sem nú fara þar um. Til að mynda fréttist af TF-KHB á ferðinni í loftið frá Egilsstaðaflugvelli í dag.