Enn leitað að rafmagnsbilun í Neskaupstað

Leit stendur enn yfir að bilun í háspennustreng sem orsakaði víðtækt rafmagnsleysi í Neskaupstað í morgun. Rafmagnslaust var í stórum hluta bæjarins í tæpa klukkustund.

Rafmagn fór af ytri hluta bæjarins rétt fyrir klukkan átta í morgun og komst aftur á kortéri fyrir níu. Samkvæmt upplýsingum frá Rarik kom upp bilun í háspennustreng frá aðveitustöð. Rafmagni var komið á eftir annarri leið.

Þegar Austurfrétt óskaði fyrst eftir upplýsingum frá Rarik, laust fyrir klukkan tíu í morgun, voru engar upplýsingar á vef fyrirtækisins né heldur fáanlegar í bilanavakt. Að lokum var gefið samband við stjórnstöð fyrir Austurland. Þar tók við símsvari með upplýsingum að rafmagnsbilun væri í Neskaupstað. Atvikið var skráð á vef Rarik upp úr klukkan 10:30 og sagt að allir notendur ættu að vera komnir með rafmagn.

Í svari við fyrirspurn Austurfréttar segir að verið sé að leggja ljósleiðara í Neskaupstað og kannað verði hvort grafið hafi verið í streng. Rarik minni verktaka á að biðja um að láta sóna fyrir jarðstrengjum áður en byrjað sé að grafa til að koma í veg fyrir óhöpp.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.