Fjölsótt ráðstefna hjá Þekkingarneti Austurlands á Reyðarfirði
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 29. mar 2010 14:42 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Fjölmenni sótti ráðstefnu Þekkingarnets Austurlands sem haldin var á Reyðarfirði á dögunum. Markmið ráðstefnunnar var að kynna niðurstöður Net-University verkefnisins, sem er Leonardo þekkingaryfirfærsluverkefni.
Milli 65 og 70 manns sóttu alþjóðlegu ráðstefnuna „Þekkingarnet Íslands,draumurinn um sjálfbært þekkingarsamfélag“ sem haldin var á Reyðarfirði þann
23. mars síðastliðinn. Ráðstefnan átti að hefjast klukkan 09:30 um morguninn, en vegna
veðurs þá þurfti að fresta henni til hádegis. Jafnframt var opnað
fyrir myndfundabúnað sem tengdist víða um land til að auðvelda þeim þátttöku sem ekki
komust yfir land og heiðar vegna veðurs.
Farið var yfir það hvernig auka mætti og samræma námsframboð í dreifnámi, þróa nám frá landsbyggðinni, efla
símenntun eða byggja upp aðgengilegt og opið menntaumhverfi með það að markmiði að mæta þörfum nemenda og tryggja jafnrétti til náms óháð búsetu og félagslegri stöðu.
Hér má sjá frétt Þekkingarnetsins af ráðstefnunni.