Skip to main content

Forgangsatriði að lækka verðbólgu og vexti

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 25. okt 2023 14:29Uppfært 25. okt 2023 14:31

Samtök atvinnulífsins (SA) halda opinn vinnufund á Egilsstöðum í fyrramálið um lausnir til að losa íslenskt efnahagslíf út úr vítahring verðbólgu og vaxta. Framkvæmdastjóri samtakanna það forgangsatriði fyrir bæði fyrirtæki og heimili.


SA hóf í vikunni ferð sína um landið um þetta viðfangsefni og eru Egilsstaðir þriðji viðkomustaðurinn. Fundurinn er tvískiptur. Klukkan níu hefst opinn vinnufundur þangað sem boðið er atvinnurekendum, almenningi, fulltrúum verkalýðsfélaga og stjórnsýslunnar. Helstu niðurstöður eru kynntar að loknum hádegisverði. Síðan tekur við fræðslufundur fyrir fyrirtæki með aðild að SA um vinnumarkaðsmál.

Fundaferðin er haldin í aðdraganda kjarasamninga en þeir renna út einn af öðrum á næsta ári, flestir í lok árs. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, segir fundarefnið valið því það sé stærsta áskorunin fyrir skjólstæðinga aðila vinnumarkaðarins. „Mér finnst vera komin samhljómur um það. Það að verðbólga sé 8% og stýrivextir 9,25% er ólíðandi, hvort sem fólk rekur heimili eða fyrirtæki.“

Flestir telja verðbólgu og vexti stærsta viðfangsefnið


SA kynnti nýverið niðurstöður könnunar sem Gallup gerði meðal félaga í SA og innan síns viðhorfahóps um komandi kjarasamninga. 63% aðildarfyrirtækjanna og 36,5% í viðhorfahópnum sögðu mesta forgangsmálið að ná samningum sem stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu.

„Þess vegna teljum við mikilvægt að fara í þessa hringferð til að ræða hvað aðilar vinnumarkaðarins, stjórnvöld, almenningur eða einstök fyrirtæki geti gert til að brjótast út úr þessum vítahringt. Við vitum að aðilar vinnumarkaðsins geta haft talsverð áhrif.“

Hún segir fyrstu fundina hafa gengið vel og þar hafi fulltrúar samtaka launafólks tekið virkan þátt. „Það hefur verið mjög ánægjulegt. Það skiptir máli að við séum samtaka um markmiðin þótt okkur greini á um leiðirnar. Þá er mikilvægt að taka samtalið.

Þú semur ekki við sjálfan þig. Að hreyfingar bæði launþega og atvinnurekenda getur haft mikil og jákvæð áhrif fyrir samfélagið. Til dæmis var lífeyrissjóðakerfinu komið á í gegnum kjarasamninga fyrir um 50 árum.“

Húsnæðismálin líka aðkallandi


Hún segir háa vexti vera farna að bíta en mörg fyrirtæki sækja útlánsvexti upp á 15%. „Við sjáum í kauphöllinni að arðsemi fyrirtækja var 20% lægri á fyrri helmingi þessa árs samanborið við sama tíma í fyrra. Háir vextir auka ekki bara kostnað heldur draga úr fjárfestingum til framtíðar.“

Af öðrum verkefnum sem fyrir liggja nefnir Sigríður Margrét húsnæðismálin. „Við finnum líka mikla áherslu á húsnæðismálin, þann kostnað sem undirliggjandi framboðsvandi skapar fyrir bæði heimilin beint en líka í formi verðbólgu.“

Opni fundurinn er haldinn í Valaskjálf og hefst klukkan 10:00.