Framboðslisti Austurlistans staðfestur
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 07. mar 2022 09:15 • Uppfært 07. mar 2022 09:18
Félagar í Austurlistanum staðfestu í gær lista hreyfingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sömu fulltrúar eru í fjórum efstu sætunum og fyrir kosningarnar 2020 þótt röð þeirra breytist lítillega.
Hildur Þórisdóttir er áfram efst en Kristjana Sigurðardóttir færir sig úr öðru sætinu niður í það fjórða. Við það færist Eyþór Stefánsson upp í annað sætið og Ásdís Hafrún Benediktsdóttir í það þriðja.
Uppstillinganefnd gerði tillögu um listann sem var samþykkt samhljóða á félagsfundi í gær. Í tilkynningu frá framboðinu kemur fram að lögð hafi verið áhersla á að einstaklingar úr öllum fjórum byggðakjörnum Múlaþings skiptu með sér efstu sætunum líkt og fyrir tveimur árum.
„Dýrmæt reynsla sveitarstjórnarfulltrúa, sem orðið hefur til frá því að undirbúningur að sameiningu hófst, mun nýtast áfram en það er gott veganesti inn í þau fjölbreyttu og stóru verkefni sem eru framundan.
Mikil áhersla verður lögð áfram á sterkar heimastjórnir, aðgengi að staðbundnu háskólanámi og að þær samgöngubætur sem liggja fyrir standist tímaáætlun. Auk þess er brýnt að vinna að umbótum í húsnæðismálum og gera þjónustu sveitarfélagsins í skipulags- og framkvæmdamálum skilvirkari.
Austurlistinn er óháð framboð sem vinnur eftir gildum félagshyggjufólks um menntamál, sterka innviði, greiðar samgöngur og virkt samtal við íbúa. Áhersla verður á að nýta sóknarfærin vel í atvinnu- og menntamálum sem og aðkomu ríkisins að mikilvægri innviðauppbyggingu. Tækifæri blasa við í samstarfi Múlaþings við UHI (University of the Highlands and Islands), uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar og samgöngubótum sem eru handan við hornið,“ segir í tilkynningu.
Eftirtaldir einstaklingar skipa listann:
1. Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Seyðisfirði.
2. Eyþór Stefánsson, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Borgarfirði.
3. Ásdís Hafrún Benediktsdóttir, bókari og varasveitarstjórnarfulltrúi, Djúpavogi.
4. Kristjana Ditta Sigurðardóttir, ritari og sveitarstjórnarfulltrúi, Fljótsdalshéraði.
5. Jóhann Hjalti Þorsteinsson, umsjónarm. heimavist og skrifstofum., Fljótsdalshéraði.
6. Rúnar Gunnarsson, yfirhafnavörður, Seyðisfirði.
7. Tinna Jóhanna Magnusson, miðaldafræðingur og kennari, Borgarfirði.
8. Ævar Orri Eðvaldsson, verkstjóri, Djúpavogi.
9. Baldur Pálsson, Austurlandsgoði, Fljótsdalshéraði
10. Sóley Rún Jónsdóttir, nemi, Seyðisfirði
11. Skúli Heiðar Benediktsson, hreindýraleiðsögumaður, Djúpavogi
12. Snorri Emilsson, lýsingahönnuður, Seyðisfirði.
13. Arna Magnúsdóttir, grunnskólakennari, Seyðisfirði.
14. Rúnar Ingi Hjartarson, leiðsögumaður, Fljótsdalshéraði.
15. Lindsey Lee, augntæknir og verkefnastjóri, Borgarfirði.
16. Ragnhildur Billa Árnadóttir, sjúkraliði, Seyðisfirði.
17. Sigurður Snæbjörn Stefánsson, fornleifafræðingur, Seyðisfirði.
18. Ásdís Heiðdal, leiðbeinandi grunnskóla, Djúpavogi.
19. Jakobína Isold Smáradóttir, háskólanemi, Fljótsdalshéraði.
20. Hafliði Sævarsson, bóndi, Djúpavogi.
21. Aðalsteinn Ásmundsson, smiður, Fljótsdalshéraði.
22. Sigrún Blöndal, grunnskólakennari, Fljótsdalshéraði