Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi staðfestur
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 28. mar 2022 10:11 • Uppfært 28. mar 2022 10:11
Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður, leiðir framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi fyrir sveitarstjórnakosningarnar þann 14. maí.
Berglind Harpa varð efst í prófkjöri flokksins sem haldið var fyrir rúmum tveimur vikum. Þar var kosið um fimm efstu sætin. Listinn í heild var svo kynntur um helgina.
„Ég er afskaplega stolt af því að leiða þennan öfluga, kraftmikla og fjölbreytta framboðslista. Sveitarstjórnarmál skipta íbúa gríðarlega miklu máli og við erum bjartsýn um að íbúar sveitarfélagsins muni styðja vel við bakið á lista Sjálfstæðisflokksins og treysta okkur áfram fyrir þeirri miklu ábyrgð að leiða framþróun sveitarfélagsins.
Við erum tilbúin í þá mikilvægu vinnu með samstöðu, jákvæðni og þann gríðarlega kraft sem við fundum fyrir hér í dag að leiðarljósi,“ er haft eftir Berglindi Hörpu í tilkynningunni.
Flokkurinn á í dag fjóra fulltrúa í sveitarstjórn en Berglind Harpa er sú eina þeirra sem er í endurkjöri. Tveir þeirra eru neðar á listanum.
Framboðslistinn er svofelldur:
1. Berglind Harpa Svavarsdóttir, formaður byggðaráðs og varaþingmaður
2. Ívar Karl Hafliðason, framkvæmdastjóri
3. Guðný Lára Guðrúnardóttir, laganemi og ljósmyndari
4. Ólafur Áki Ragnarsson, þróunarstjóri
5. Einar Freyr Guðmundsson, formaður ungmennaráðs Múlaþings
6. Sunna Dögg Markvad Guðjónsdóttir, bókari
7. Sigurður Gunnarsson, viðskiptafræðingur
8. Sylvía Ösp Jónsdóttir, leiðbeinandi
9. Claudia Trinidad Gomez Vides, verkakona
10. Björgvin Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri
11. Bjarki Sólon Daníelsson, nemi og skólaliði
12. Davíð Þór Sigurðarson, svæðisstjóri og bóndi
13. Kristófer Dan Stefánsson, nemi
14. Herdís Magna Gunnarsdóttir, bóndi
15. Guðný Margrét Hjaltadóttir, skrifstofustjóri
16. Oddný Björk Daníelsdóttir, rekstrarstjóri
17. Þórhallur Borgarsson, vaktstjóri
18. Ágústa Björnsdóttir, hobbýbóndi
19. Karl Lauritzson, viðskiptafræðingur
20. Elvar Snær Kristjánsson, verktaki og formaður fræðsluráðs Múlaþings
21. Vignir Freyr Magnússon, skólaliði
22. Jakob Sigurðsson, bifreiðastjóri, bóndi og bæjarstjórnarfulltrúi
Mynd: Aðsend