Framleiða gin til verndar villta laxinum

Sérstök gintegund, merkt Six Rivers sem heldur utan um veiði í sex laxveiðiám á Norð-Austurlandi, hefur gert samning við sænskan ginframleiðanda um framleiðslu á sérstöku gini undir sínu nafni. Hluti söluhagnaðar á að renna til að vernda villta Atlantshafslaxinn.

Ginið er framleitt af Hernö Gin, sem hlotið hefur fjölda verðlauna fyrir afurðir sínar. Þannig hefur það þrisvar sinnum, oftast allra, fengið verðlaunin fyrir besta gin og tóník á Alþjóðlegu vín- og áfengiskeppni IWSC, þar af síðast í fyrra.

Í tilkynningu segir að Sir Jim Rafcliffe, stofnandi Six Rivers, hafi í kjölfarið heimsótt framleiðsluna í Härnösand í Norður-Svíþjóð og þar með hafi farið af stað viðræður sem nú hafi borið árangur.

„Hernö liðið hefur mikla ástríðu fyrir framleiðslu sinni og löngun til að skila ekki bara af sér ginflösku heldur upplifun,“ er haft eftir honum í tilkynningu.

Six Rivers ginið byggir á hefðbundnu Hernö gini sem inniheldur einiber, kóríanderfræ, mjaðjurt, títuber og sítrónubörk en bætt er við íslenskum fjallagrösum og vallhumli til að laða fram hið íslenska bragð.

Ginið verður fyrst og fremst selt í Bretlandi og á Íslandi. Ákveðinn hluti af andvirði hverrar seldrar flösku rennur til baráttu Six Rivers til að vernda villta Atlantshafslaxinn.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.