Friðrik Mar hættir hjá Loðnuvinnslunni í haust
Friðrik Mar Guðmundsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga og sem framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar í haust.Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum. Þar segir að nokkuð sé síðan Friðrik hafi ákveðið þetta og tilkynnt stjórnum félaganna. Hann starfar áfram hjá félögunum meðan leitað verður að arftaka hans.
Friðrik hefur starfað fyrir félögin í 19 ár, fyrst í stjórn en síðan sem framkvæmdastjóri undanfarin tíu ár. Á þeim tíma hefur reksturinn gengið vel. Eigið fé Loðnuvinnslunnar hefur síðustu níu ár fimmfaldast, farið úr 3 milljörðum í 15 milljarða, og hefur hagnaður verið samtals 13 milljarðar.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga á 83% hlut í Loðnuvinnslunni og 350 af 750 íbúum bæjarins eru félagar í Kaupfélaginu.