Garðar Svavarsson næsti framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar

Garðar Svavarsson, forstöðumaður uppsjávarsviðs Brims, hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar og jafnframt Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga. Hann tekur við starfinu af Friðrik Mar Guðmundssyni sem um miðjan apríl tilkynnti hann myndi láta af störfum í haust.

Garðar er sjávarútvegsfræðingur að mennt og hefur starfa hjá Brim í 24 ár, þar af sem forstöðumaður uppsjávarsviðsins undanfarinn áratug.

Í tilkynningu segir að Garðar hafi mjög víðtæka reynslu af störfum innan sjávarútvegs. Frá því að hann hóf störf í fiskvinnslu á unglingsárum hefur hann gegnt hinum ýmsu störfum á sviði framleiðslu, sölu og markaðsmála og tekið virkan þátt í uppbyggingu Brims.

Hann kemur til með að flytja austur á Fáskrúðsfjörð með konu sinni Aldísi Önnu Sigurjónsdóttur, náms- og starfsráðgjafa. Þau eiga saman fjögur börn. Garðar verður jafnframt kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga, sem er aðaleigandi Loðnuvinnslunnar.

Friðrik Mar hefur framkvæmdastjóri undanfarin tíu ár en viðloðandi rekstur beggja undanfarin 19 ár. Á þessum tíma hefur reksturinn gengið vel, eigið fé félagsins farið úr 3 milljörðum í tæpa 16 milljarða og samanlagður hagnaður verið 14,5 milljarðar. Árið 2022 var hið besta í sögu félagsins.

„Ég vil þakka fyrir það traust og þann stuðning sem ég hef fengið frá starfsfólki og stjórn félaga á liðnum árum. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð saman. Jafnframt er ég þakklátur því að jafn reynslumikill og traustur maður og Garðar Svavarsson taki við keflinu í haust og leiði fyrirtækið inn í nýja tíma,“ er haft eftir Friðrik Mar í tilkynningu.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjóraskiptin verði í lok október. Áður en til þeirra kemur hefur verið boðað til hátíðarhalda á Fáskrúðsfirði um miðjan september í tilefni þess að Kaupfélagið er 90 ára og skilið Ljósafell 50 ára í ár.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.