Skip to main content

Guðjón Rafn hlaut styrk úr Snorrasjóði

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 31. jan 2022 14:53Uppfært 31. jan 2022 14:53

Það var Guðjón Rafn Steinsson sem að þessu sinni hlaut námsstyrk úr Snorrasjóði á Djúpavogi. Þetta er í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.

Fjallað er um málið á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að úr sjóðnum eru veittar 500.000 kr. einum nemanda einu sinni á ári. Að þessu sinni var það Guðjón Rafn sem hlaut námsstyrkinn en hann stundar nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri.

„Snorrasjóður var stofnaður árið 2019 að frumkvæði Gunnþóru Gísladóttur frá Papey til minningar um Snorra Gíslason bróður hennar og tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk úr Djúpavogshreppi til náms,“ segir á vefsíðunni.

„Snorri Gíslason frá Papey fæddist 4. ágúst 1915. Snorri var mikill hagleiksmaður og byrjaði hann snemma að smíða ýmsa muni svo sem húsgögn og ýmislegt smálegt. Snorri fékkst lengi vel við að smíða líkön af bátum og voru þeir eftirsóttir vegna þess hversu vandaðir þeir voru. Fínleiki bátanna vakti athygli en allt var handunnið, möstrin mótuð með hefli og sandpappír og voru bátarnir nákvæm eftirmynd af bátum í fullri stærð.

Snorri var 10 ára gamall þegar hann fór fyrst í land. Þá var farið á árabát. Pabbi hans og Ingólfur bróðir reru, þetta var ullarferð að sumarlagi, verið að skila ullinni til innlagnar á Djúpavog og Snorri fékk að fara með. Þegar í land var komið fékk Snorri að fara í verslunina þar sem hann gat keypt gráfíkjur og kandís. Eftir þetta fór Snorri einu sinni eða tvisvar í land fyrir fermingu.

Upp úr 1940 tók Snorri til við að setja upp vindrellu í Papey og setti hann svo upp hleðslustöð og lagði rafmagn í húsið. Með þessari framkvæmd varð Papey eitt af fyrstu húsunum á Djúpavogi sem fékk rafmagn.

Snorri fluttist í land árið 1949 þá 34 ára gamall og settist að í húsi sem ber sama nafn og bærinn í Papey, Bjarg. Seinna meir festi hann sólarrafhlöðu utan á húsið þar sem hann safnaði rafmagni til heimilisnota.

Snorra féll sjaldan verk úr hendi og hann var að vinna við endurbætur á húsinu sínu eða smíða skipslíkön fram á síðustu ár.

Snorri lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn 29. júní 2014 á nítugasta og níunda aldursári.“

Mynd: Það var Kristján Ingimarsson formaður stjórnar Snorrasjóðs sem afhenti Guðjóni styrkinn./mulathing.is