Skip to main content

Heilbrigðisráðherra: Ákvörðunin verður tekin fyrir austan

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 05. nóv 2010 21:34Uppfært 08. jan 2016 19:21

Image Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, segist tilbúin að skoða fyrirhugaða lokun Sundabúðar í samráði við forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Þeir þurfi þó að taka loka ákvörðunina.

 

Þetta hefur Pressan eftir Guðbjarti í dag. Fyrr í vikunni var sagt frá því að hjón, sem búið hafi saman í sextíu ár, verði hugsanlega aðskilin þegar hjúkrunarheimilinu verði lokað í sparnaðarskyni.

„ Ég ætla að vona að það verði fundin lausn, en það er óvarlegt að gefa út hvar við leiðréttum eða hvernig fyrr en við sjáum heildardæmið,“ segir Guðbjartur.

Fimm manna hópur á hans vegum hefur undanfarna daga farið í kringum landið og hitt yfirmenn heilbrigðismála á hverju svæði. Hópurinn á síðan að skila af sér tillögum í næstu viku.

Guðbjartur segir niðurskurðinn á Vopnafirði fyrst og fremst á borði HSA en ráðuneytið sé tilbúið að skoða máli í samvinnu við stofnunina.

 „Það er auðvitað aldrei æskilegt og það á alls ekki að skilja sundur hjón með því að flytja fólk hreppaflutningum milli svæða. Þetta þarf að meta í hverju einasta tilfelli miðað við aðstæður á hverjum stað“