„Hver starfsstöð verði áfram öflugur vinnustaður í heimabyggð“
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 15. mar 2022 11:43 • Uppfært 15. mar 2022 13:11
Dómsmálaráðuneytið segir að fyrirhugaðar breytingar á sýslumannsembættum verði til að gera þær stjórnsýslustöðvum ríkis í heimabyggð. Ráðherra segir stafræna vegferð ríkisins „spennandi byggðamál.“
Þetta kemur fram í tilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér í dag. Eins og Austurfrétt greindi frá í gær voru sýslumönnum og starfsmönnum embættanna kynntar hugmyndir um sameiningu embættanna, sem í dag eru níu, í eitt.
Boðað er að ráðherra muni heimsækja öll embættin á næstu viku og halda vinnufundi með starfsfólki til að tryggja náið samstarf um breytingarnar.
Breytingarnar eiga sér uppruna í skýrslu um framtíðarsýn á starfsemi sýslumannsembættanna sem kom út fyrir ári. Niðurstöður hennar eru meðal annars að hagræða megi í rekstri og vinnu með að skipta verkefnum sýslumanna út frá starfsfólki en ekki landfræðilegum umdæmum, til að forðast íþyngjandi aðgerðir. Þá er vísað í áherslur í byggðamálum úr hvítbók um byggðamál frá í fyrra.
Stjórnsýslustöðvar ríkis í heimabyggð
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að um sé að ræða gagngera endurskoðun á skipulagi sýslumannsembættanna. Efla eigi núverandi starfsemi þannig að til verði „verði nútímalegar þjónustueiningar, einskonar stjórnsýslustöðvar ríkis í heimabyggð, sem veita framúrskarandi þjónustu, óháð staðsetningu borgarans eða stjórnsýslustöðvarinnar.“
Þá leggi ráðherra áherslu á að í stað þess að „endurskipuleggja starfsemi hins opinbera í heimabyggð frá grunni sé ætlunin að nýta þann mannauð og þær starfsstöðvar sem þegar eru fyrir hendi á vegum ríkisins um allt land.“
Því sé ekki ætlunin að fækka starfsstöðum, heldur efla ef eitthvað er, því starfsfólk embættanna um allt land búi yfir verðmætri þekkingu og reynslu. Því vonast eftir farsælu samstarfi við sveitarstjórnir.
Störf án staðsetningar
„Í kynningu ráðherra fyrir starfsfólki kom fram að með niðurfellingu lögsagnarumdæma, ríkara samstarfi á milli starfsstöðva undir einni þjónustustofnun og aukinni áherslu á stafræna þjónustu gefist einstakt tækifæri til þess að bæta þjónustuna og byggja upp mismunandi sérhæfingu á hverjum stað, sem þjónar í senn heimabyggð og öllu landinu.
Með breyttu skipulagi telur ráðherra einnig hægara um vik að fela starfsstöðvunum ný verkefni hins opinbera sem snúa að þjónustu við almenning og er undirbúningur þess þegar hafinn hjá ráðuneytinu.
Hver starfsstöð verði áfram öflugur vinnustaður í heimabyggð til að þjónusta bæði heimamenn og allt landið, ásamt því að málsmeðferðin verður skilvirkari, samræmdari og vandaðri. Þá skapast sveigjanleiki með innleiðingu nútímalegri stjórnsýsluhátta sem auðveldar starfsfólki að vinna verkefni hvar sem er á landinu og eru því tækifæri fyrir hendi að geta boðið starfsfólki upp á störf án staðsetningar í anda opinberrar stefnu þar um,“ segir í tilkynningunni.
Nýta verði tækifæri
Haft er eftir Jóni Gunnarssyni, dómsmálaráðherra að stafræn vegferð ríkisins hafi þegar haft mikil áhrif á almenning sem noti þjónustuna. Enn stærri tækifæri bíði við að innleiða stafrænt verklag og störf án staðsetningar í flestöllum þáttum opinberrar stjórnsýslu.
„Sérhæfing á einum stað hefur alla burði til að þjónusta allt landið. Þetta er án efa eitt stærsta og mest spennandi byggðamál sem blasir við ríki og sveitarfélögum. Nú reynir á fólk um allt land, bæði íbúa og sveitarstjórnir að sjá og hagnýta öll tækifærin sem felast í þeim óumflýjanlegu breytingum sem eru að verða á samfélaginu.“
Fyrirhugað er að ljúka almennu samráði og undirbúningsvinnu fyrir næsta haustþing og leggja þá fram frumvarp um breytta högun sýslumannsembætta landsins.