Skip to main content

Jónína leiðir lista Framsóknarflokks í komandi sveitarstjórnarkosningum

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 17. mar 2022 09:24Uppfært 17. mar 2022 09:25

Tillögur uppstillingarnefndar Framsóknarfélags Múlaþings um skipan framboðslista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum var samþykkt einróma á Egilsstöðum í gærkvöldi.

Jónína Brynjólfsdóttir, varafulltrúi í sveitarstjórn og varaformaður umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings mun leiða listann að þessu sinni meðan Vilhjálmur Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi og fyrrum bæjarstjóri Seyðisfjarðar, skipar annað sætið.

Sköpuðust fjörlegar umræður á fundinum að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur í nýju sameinuðu sveitarfélagi og styrkja frekar áframhaldandi uppbyggingu innviða. Þar ekki síst horft til stærri samgönguframkvæmda á Borgarfjarðarvegi og Axarvegi auk gerðar Fjarðarheiðarganga. Sömuleiðis skal leggja áherslu á málefni barna, ungmenna og þjónustu við fjölskyldufólk á svæðinu.

Listinn í heild:

1. Jónína Brynjólfsdóttir

2. Vilhjálmur Jónsson

3. Björg Eyþórsdóttir

4. Eiður Gísli Guðmundsson

5. Guðmundur Bj. Hafþórsson

6. Alda Ósk Harðardóttir

7. Þórey Birna Jónsdóttir

8. Einar Tómas Björnsson

9. Ásdís Helga Bjarnadóttir

10. Jón Björgvin Vernharðsson

11. Sonia Stefánsson

12. Atli Vilhelm Hjartarson

13. Inga Sæbjörg Magnúsdóttir

14. Dánjal Salberg Adlersson

15. Guðrún Ásta Friðbertsdóttir

16. Kári Snær Valtingojer

17. Íris Randversdóttir

18. Þorsteinn Kristjánsson

19. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir

20. Unnar Elísson

21. Óla Björg Magnúsdóttir

22. Stefán Bogi Sveinsson