Karlmaður á þrítugsaldri í haldi lögreglu: Yfirheyrslur að hefjast
Lögreglan hefur karlmann á þrítugshaldi í haldi í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns á sjötugsaldri í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum í morgun.
Í samtali við Austurfrétt sagði Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, að maðurinn væri í haldi þar til að lögreglan gæti „yfirheyrt hann um ferðir hans í nótt.“ Hann verður yfirheyrður síðar í dag og hefur honum verið tilnefndur verjandi.
Samkvæmt heimildum Austurfréttar er þar um að ræða mann sem hafði ónáðað nokkra íbúa í blokkinni í gærkvöldi. Jónas staðfesti að lögreglan hefði talað við manninn um miðnættið.
Embætti Lögreglustjórans á Eskifirði, fer í samvinnu við tæknideild Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu með rannsókn þess sem nefnt hefur verið „voveiflegt mannslát“ í fjölbýlishúsinu Blómvangi 2, svokallaðri Bónusblokk, á Egilsstöðum. Hinn látni var á sjötugsaldri. Báðir mennirnir bjuggu í blokkinni.
Tíu manns starfa við rannsóknina sem að sögn Jónasar gengur frekar vel. Lögreglan var kölluð að blokkinni upp úr klukkan átta í morgun og maðurinn handtekinn skömmu síðar.
Íbúi í húsinu sagði í samtali við Austurfrétt að á níunda tímanum í morgun hefði verið mikið af sjúkra- og lögreglubílum í kringum blokkina og fólki afar brugðið.
--17:30
Tæknimenn frá lögreglunni hafa verið við rannsókn á svölunum í íbúð hins látna síðustu klukkutímana.
--17:30
Tæknimenn frá lögreglunni hafa verið við rannsókn á svölunum í íbúð hins látna síðustu klukkutímana.
--18:55
Í samtali við Austurfrétt staðfesti Jónas Wilhelmsson að rannsókninni miðaði vel. Yfirheyrslur væru að fara að hefjast og að þeim loknum yrði ákveðið hvort farið yrði fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem er í haldi.