Litlu munar á Framsókn og Miðflokknum á Austurlandi

Framsóknarflokkurinn mælist með mest fylgi meðal Austfirðinga í nýrri könnun, en er aðeins sjónarmun á undan Miðflokknum. Samfylkingin kemur verr út eystra en annars staðar.

Þetta eru niðurstöður fylgiskönnunar sem Maskína gerði í júní. Hún er stærri en oft áður þar sem 76 svör bárust frá Austurlandi.

Þar kemur Framsóknarflokkurinn best út, mælist með 23,9% fylgi en Miðflokkurinn er skammt undan með 23,3%. Munurinn þeirra á milli er langt innan skekkjumarka. Sjálfstæðisflokkurinn er þriðji með 20,6%. Þetta er besta útkoma allra þessa flokka á landsvísu.

Samfylkingin mælist stærsta á landsvísu en fær aðeins 12,9% meðal Austfirðinga. Flokkur fólksins mælist með 8,2%, Vinstrihreyfingin – grænt framboð með 4,9%, Sósíalistaflokkurinn 2,6%, Viðreisn 2,2% og Píratar 8,2%.

Hver er staðan í Norðausturkjördæmi?


Könnun er ekki brotin niður eftir kjördæmum heldur landssvæðum. Þunginn af Norðausturkjördæmi, sem og Norðurlandi, er hins vegar á Eyjafjarðarsvæðinu. Með að bæta því svæði við Austurlandstölurnar má leiða að því líkur að þar með séu komnar tölur sem gefi mynd af stöðunni í kjördæminu. Ekki síst vegna þess að 215 svör eru frá Norðurlandi.

Með þeim er Framsóknarflokkurinn enn sterkastur með 22,42%, Miðflokkurinn fær 17,76%, Samfylkingin 17,33%, Sjálfstæðisflokkurinn 14,25%, VG 7,56%, Sósíalistaflokkurinn 5,78%, Viðreisn 5%, Flokkur fólksins 3,69% og Píratar 4,38%.

Miðað við að 11 þingsæti séu í kjördæminu fengi Framsóknarflokkurinn og Miðflokkurinn 3 fulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn tvo og VG einn. Næstir inn væru annað hvort þriðji þingmaður Samfylkingar eða fyrsti maður Sósíalista á kostnað þriðja manns miðflokksins. Fjórði þingmaður Framsóknar er heldur ekki langt undan.

Ánægja með störf ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu


Þá hefur Maskína einnig birt könnun sína á ánægju með störf ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu. Slíkar kannanir eru gerðar þrisvar á ári. Þess vegna er töluverður fjöldi á bakvið þær niðurstöður fyrir Austurland, 291 á bakvið spurninguna um ríkisstjórnina og 264 um stjórnarandstöðuna.

Á Austurlandi segjast 17,8% vera ánægð með ríkisstjórnina, 49,9% óánægð og 32,3% tiltölulega hlutlaus. Ánægja með ríkisstjórnina er almennt meiri á landsbyggðinni en í Reykjavík, þar sem 62,5% segjast óánægð en 24,1% ánægð.

Hvað störf stjórnarandstöðunnar varðar þá segjast 12,7% Austfirðinga ánægð með hana, 41,7% óánægð og 45,6% eru hlutlaus. Það eru svipaðar tölur og á landsvísu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.