Mikilvægt fyrir Austfirði að loðnuleit skili árangri
Reiknað er með að loðnuleit hefjist að nýju í byrjun febrúar. Í leitinni sem fram fór seinni hluta janúar fannst lítið af loðnu og vísbendingar voru um að loðnan héldi sig að miklu leiti undir hafís norðvestur af landinu. Af þeim sökum gaf Hafrannsóknastofnun út þá ráðgjöf að ekki skyldi gefinn út loðnukvóti að sinni.
Á vef Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er fjallað um fyrirhugaða loðnuleit og fyrri vertíðir. Þar segir að það hafi vakið athygli loðnuleiðangursmanna í janúar að engin loðna virtist gengin suður fyrir Langanes. Samkvæmt þekkingu gamalla skipstjóra þarf það þó ekki að koma á óvart segir á vef Síldarvinnslunnar. „Skipstjóranir segja að á fyrri tíð hafi loðna stundum ekki gengið suður fyrir Langanes fyrr en komið var fram yfir miðjan febrúar. Sannleikurinn er sá að loðnan er brellin og erfitt að reikna út atferli hennar.“
Skip frá Síldarvinnslunni hafa tekið þátt í loðnuveiðum frá árinu 1996 og var loðna fyrst unnin í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins árið 1968. Framleiðsla á frystri loðnu hófst fyrst hjá Síldarvinnslunni árið 1971 og framleiðsla á loðnuhrognum árið 1978.
Miklu máli skiptir fyrir Austfirði að væntanleg loðnuleit skili þeim árangri að gefinn verði út loðnukvóti. Loðnuveiðar skipta fyrirtæki, fólk og sveitarfélög miklu máli, enda verða til mikil verðmæti á skömmum tíma þegar vel gengur á loðnuvertíðum. „Menn eru minnugir svonefndra loðnuleysisára þegar veiðar voru afar takmarkaðar eða engar. Menn muna til dæmis eftir árunum 1981 – 1982, 1990 – 1991 og ekki síst árunum 2019 og 2020.“